Innlent

Stjórnvöld tryggi að Ísland eigi öfluga talsmenn erlendis

Stjórn Almannatengslafélag Íslands hvetur stjórnvöld til að tryggja að Ísland og Íslendingar eigi sér öfluga talsmenn erlendis, sem hafi umboð og tæki til að bregðast við neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun um leið og hún kemur upp. Það þolir ekki lengri  bið, að fram kemur í ályktun stjórnar félagsins.

Þar segir að nýlega umræða í breska þinginu þar sem Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, hafi farið rangt með staðreyndir og fjallað um Ísland með neikvæðum hætti, varpi ljósi á þá einkennilegu staðreynd að ríkistjórn Íslands hafi ekki á sínum snærum í Bretlandi málsvara. Málsvara sem gætu að minnsta kosti geti leiðrétt augljósar staðreyndavillur.

„Slíkur málsvari gæti beitt sér og nýtt uppákomur sem þessar til þess að bæta orðspor þjóðarinnar. Þetta hefur sjaldan verið mikilvægara en einmitt nú, þegar að Ísland er reglulegt fréttaefni víða um lönd vegna bankahrunsins.“

Í tillögum starfshóps Almannatengslafélags Íslands frá því í október síðastliðnum kom fram að brýnt væri að semja við alþjóðleg almannatengslafyrirtæki um að koma sjónarmiðum Íslendinga á framfæri erlendis, að fram kemur í ályktuninni.

Að mati Almannatengla félagsins er enginn vegur fyrir ráðuneyti eða aðgerðahópa hér á landi að hafa þá staðbundnu yfirsýn sem þurfi til að taka réttar og skjótar ákvarðanir um slíkar aðgerðir.

Þá segir jafnframt í ályktuninni að mörg dýrmæt tækifæri í upplýsingamiðlun til erlendra fjölmiðla hafi farið forgörðum. „Svo virðist sem að enn sé hik í þeim efnum af hálfu stjórnvalda og ætlunin sé að fjarstýra upplýsingamiðluninni héðan. Það er borin von.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×