Óljóst hvort leyfilegt verður að greiða út séreignarsparnað 12. janúar 2009 19:15 Árni Mathiesen, fjármálaráðherra.
Niðurstöðu er að vænta um hvort leyft verði að greiða fólki út séreignarlífeyrisparnað sinn. Skiptar skoðanir eru um málið, en fjármálaráðherra vill ekki tjá sig um það. Landsmenn hafa lagt um 250 til 300 milljarða króna í séreignarsparnað á þeim 9 árum sem sá möguleiki hefur verið fyrir hendi. Samkvæmt lögum er óheimilt að taka út lífeyrissparnað fyrir 60 ára aldur, en eftir bankahrunið var farið að skoða hugmyndir um að gera séreignarsparnaðinn aðgengilegan eigendum - einkum til að styrkja stöðu þeirra sem eru í greiðsluerfiðleikum. Margir telja sig geta leiðrétt bágan fjárhag með því að fá aðgang að séreignarsparnaði og bíða með óþreyju eftir niðurstöðu í málinu. Lítið hefur hins vegar farið fyrir umræðunni um það síðustu vikur. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er niðurstaða í sjónmáli, en áður en pólitísk ákvörðun er tekin þurfa að liggja fyrir upplýsingar frá fjármálaráðuneytinu sem sýna meðal annars hvaða áhrif útborgun séreignarsparnaðar hefði á lífeyrissjóðina sjálfa. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður, hefur fylgt málinu eftir fyrir hönd Samfylkingar og hefur talað fyrir því að fólki verði gert kleift að taka út séreignarsparnað sinn, enda er hún sannfærð um að einungis þeir verst settu myndu nýta sér þennan möguleika. Ekki eru þó allir sammála því og hafa ýmsir forsvarsmenn lífeyrissjóða áhyggjur af því að aðgerð sem þessi gæti verðfellt sjóðina og þeir kynnu að lenda í erfiðleikum. Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, var ekki reiðubúinn til að veita viðtal og greina frá gangi mála þegar eftir því var leitað í dag.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Sjá meira