Innlent

Viðskiptaráðherra án aðstoðarmanns og upplýsingafulltrúa

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gylfi Magnússon var skipaður viðskiptaráðherra í minnihlutastjórninni og aftur eftir kosningar. Mynd/ Pjetur.
Gylfi Magnússon var skipaður viðskiptaráðherra í minnihlutastjórninni og aftur eftir kosningar. Mynd/ Pjetur.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra starfar þessa dagana án aðstoðarmanns og upplýsingafulltrúa. Helga Valfells var aðstoðarmaður hans fyrir kosningar og Þorfinnur Ómarsson upplýsingafulltrúi en þau hafa bæði horfið á braut.

„Þegar ég varð ráðherra í febrúar þá réð ég Helgu sem aðstoðarmann út apríl í ljósi þess að kjósa átti í lok apríl. Þorfinnur var ráðinn tímabundið af forvera mínum sl. haust og vann sömuleiðis út apríl. Ég vildi í hvorugu tilfellinu skuldbinda ráðuneytið lengur en út apríl enda vissi ég ekki hvort ég yrði ráðherra eftir þann tíma," segir Gylfi.

Hann segir að ekki hafi unnist tími í að ráða í störf þeirra Helgu og Þorfinns eftir stjórnarmyndun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×