Bjarni vinsælastur meðal sjálfstæðismanna 5. febrúar 2009 10:08 Bjarni Benediktsson.
Meira en helmingur sjálfstæðismanna vilja að Bjarni Benediktsson verði næsti formaður flokksins. 22% þeirra vilja að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir veiti flokknum forystu. Þetta kemur fram í könnun Frjálsrar verslunar fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 2. til 4. febrúar. Enn sem komið er hefur Bjarni einn lýst formlega yfir framboði til formanns. Fólk var spurt hvern viðkomandi vilji sjá sem næsta formann Sjálfstæðisflokksins. Ef aðeins er litið á fylgismenn flokksins nefndu 57% þeirra sem afstöðu tóku Bjarna, 22% Þorgerði, 5% Kristján Þór Júlíusson, 4% Guðlaug Þór Þórðarson og 3% Illuga Gunnarsson. Þorgerður nýtur stuðnings út fyrir flokkinn Þegar svör fylgismanna allra flokka eru skoðuð kemur í ljós að forskot Bjarna er mun minna. Um 56% aðspurðra nefndu eitthvert formannsefni. Bjarna nefndu 43% og Þorgerði 37%. Davíð Oddsson, Kristján Þór, Guðlaugur Þór og Illugi fengu allir á milli 2 og 4% stuðning. Sjálfstæðisflokkurinn stærstur Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn í könnuninni mælist um 32%. Vinstri græn fengu 24% og Samfylking 23%, Framsóknarflokkurinn 16%, Frjálslyndir 2%. Aðrir fá 2%. Það voru raddir fólksins, Lýðveldisbyltingin og Neyðarstjórn kvenna. Könnunin gefur ekki ósvipaða niðurstöðu og könnun sem birt var á Stöð 2 fyrr í vikunni. Sjálfstæðismenn fá þó heldur meira fylgi nú en í þeirri könnun og VG og Samfylking heldur minna. Munurinn er innan skekkjumarka. 36% óvissir eða svöruðu ekki Alls voru 600 spurðir og mikið var um óvissa og þá sem ekki vildu svara. Í könnuninni voru 36% óviss eða vildu ekki svara, Um 6% ætla ekki að kjósa eða skila auðu.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira