Neyðarkall úr Breiðholti reyndist vera gabb 5. febrúar 2009 14:45 TF -EIR leitaði að sendinum í dag. MYND/Vilhelm
Neyðarsendir sá sem Landhelgisgæslan hefur leitað að síðan í morgun fannst fyrir stundu. Þyrla Lanhelgisgæslunnar hefur verið á sveimi yfir borginni í dag og leitað að sendinum sem fannst í Breiðholti og var greinilegt að honum hafði verið komið fyrir og hann gangsettur. Gæslan lítur málið mjög alvarlegum augum. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að þegar Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í morgun tilkynning um að flugvélar í yfirflugi næmu merki frá neyðarsendi var strax farið í að finna út staðsetningu hans. Varðskip og stjórnstöð Landhelgisgæslunnar ásamt björgunarskipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar gátu fljótlega grófreiknað út leitarsvæðið. „Komust þeir að því að neyðarsendirinn væri í Reykjavík og fundu út í hvaða hverfi borgarinnar sendirinn væri staðsettur. Fór þá þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR á vettvang sem gat með búnaði sínum minnkað leitarsvæðið talsvert, en ekki nóg, þar sem neyðarsendirinn var staðsettur í íbúabyggð," segir einnig í tilkynningunni. Þá segir að starfsmenn flugdeildar Landhelgisgæslunnar hafi tekið við leitinni og fóru þeir ásamt sérfræðingi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar fóru um leitarsvæðið með handmiðunartæki. Fannst neyðarsendirinn að lokinni þriggja tíma leit. „Landhelgisgæslan lítur málið mjög alvarlegum augum því tímafrekt er og kostnaðarsamt að setja af stað leit sem þessa auk þess sem verið er að misnota tæki sem annars geta bjargað mannslífum," segir einnig um leið og þeim tilmælum er beint til allra sem endurnýja neyðarsenda í bátum sínum eða flugförum að koma útrunnum neyðarsendum strax til Landhelgisgæslunnar eða til Póst- og fjarskiptastofnunar til að komast megi hjá aðgerðum sem þessum.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira