Geðfötluðum börnum úthýst á Suðurnesjum 5. febrúar 2009 14:45 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur skorið niður alla þjónustu við börn með geðraskanir á Suðurnesjum. „
Landsvæði sem var til fyrirmyndar með þessa þjónustu hefur verið sprengt aftur á steinöld," segir Gylfi Jón Gylfason, yfirsálfræðingur hjá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar, en sú ákvörðun var tekin á dögunum að skera niður þjónustu fyrir börn með geðraskanir. Gylfi segir að þjónustan hafi náð til nær allra nágrannabyggða á suðurnesjum og þjónustaði börn með margvísislega geðraskanir svo sem þunglyndi, ofvirkni, áráttuhegðun og svo framvegis. Gylfi er gríðarlega ósáttur við ákvörðunina en það var Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HHS) sem þjónustaði börnin. Vegna víðtæks niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu var ákveðið að skera niður þjónustu við börn með geðfatlanir þar sem ekki hafa náðst samningar um greiðslur til stofnunarinnar. „Þetta er kreppuákvörðun," segir Gylfi sem segir þróunina ólýsanlega sorglega. Hann bendir á að áður en þjónustunni var upprunalega komið á þá þurftu börn á Suðurnesjum að leita, nær undantekningalaust, á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans á höfuðborgarsvæðinu. „Við höfum átt mjög gott samstarf við heilbrigðisstofnunina varðandi börn sem eru til að mynda með þunglyndi, kvíða eða áráttur og öll gátu þau fengið meðferð í heimabænum. Núna hefur það verið strikað út með einu pennastriki," segir Gylfi dapur í bragði, en hann ásamt fleiri sálfræðingum og hagsmunaaðilum, hafa sent erindi bæði til nýs heilbrigðisráðherra, Ögmundar Jónassonar, sem og bæjarstjóra á Suðurnesjum. „Við vitum ekki hvað tekur núna við né hvert börnin þurfi að leita sér aðstoðar," segir Gylfi sem kvíðir fyrir afleiðingunum, sem hann telur að verði víðtækar. Hann bendir á að börn með geðraskanir hafi talsverð áhrif á sitt nánasta umhverfi, sé högum þeirra breytt með þessum hætti þá geti þær afleiðingar orðið neikvæðar. Sjálfur segist Gylfi hafa fullan skilning á því að það þurfi að skera niður á tímum sem þessum. Hann spyr hinsvegar á móti hvort þarna sé um raunverulegan sparnað að ræða, börn með geðraskanir séu áætluð um fimm prósent á Suðurnesjum, sá fjöldi bætist nú á álagið á þjónustu við börn með geðraskanir á höfuðborgarsvæðinu. „Álagið er neikvætt og þýðir bara eitt - biðlistar," segir Gylfi að lokum og vonar einlægt að niðurskurðurinn verði endurskoðaður.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira