Innlent

Fangar á Litla-Hrauni hótuðu hungurverkfalli

Nokkrir fangar í fangelsinu á Litla-Hrauni hafa lýst yfir óánægju með þann mat sem þeim er boðið upp á í vistinni. Svo illa líkar sumum þeirra fæðið að rætt var um að fara í hungurverkfall samkvæmt heimildum fréttastofu. Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins segist kannast við málið en að hún viti ekki annað en að það hafi verið leyst.

Tildrög málsins eru þau að í einu húsi fangelsisins elda fangarnir sjálfir sinn mat og hefur sú tilhögun tekist vel að sögn Margrétar. Hins vegar stendur sú tilhögun ekki öllum föngum til boða og fá þeir sem búa í öðru húsi innan veggja Litla-Hrauns sendan mat utanfrá.

„Þeir hafa verið óánægðir með að fá ekki nægan mat en við funduðum með þeim í dag og ég veit ekki betur en að málið sé leyst," segir Margrét og bætir því við að fangarnir hafi borðað vel í hádeginu og að á Litla-Hrauni sé allt með ró og spekt.

Hluti þeirra sem lýst hafa yfir óánægju með kostinn eru útlendingar sem sitja af sér dóm hér á landi og snúast umkvartanir þeirra að sögn Margrétar mikið til um það að þeim líkar einfaldlega ekki íslensk matargerð.

Margrét segir að fangarnir hafi beðið um að fá að elda sjálfir líkt og félagar þeirra í hinu húsinu en að sögn Margrétar stendur það þeim ekki til boða.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×