Geir hefur fullan skilning á hlutskipti lögreglumanna 23. janúar 2009 10:48 Geir H. Haarde.
Forsætisráðherra átti í dag fund með Snorra Magnússyni, formanni Landssambands lögreglumanna og öðrum forsvarsmönnum félagsins. Snorri skrifaði Geir Haarde opið bréf á dögunum en honum fannst ráðherra gera lítið úr þeim meiðslum sem lögreglumenn hafa orðið fyrir í mótmælum undanfarið í viðtali á Stöð 2 í kjölfar mótmælanna á gamlársdag. „Á fundinum ítrekaði ráðherra velvilja sinn í garð lögreglunnar og ánægju með störf hennar. Mat ráðherrans er að lögreglan og lögreglumenn hafi sinnt sínu starfi með miklu sóma undanfarna mánuði við erfiðar aðstæður," segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. „Forsætisráðherra er mæta vel kunnugt um starfsskilyrði lögreglumanna og hefur fullan skilning á hlutskipti þeirra og fjölskyldna þeirra og þeirri hættu sem lögreglumenn leggja sig í þegar átök brjótast út," segir einnig. Geir segir einnig að Landssamband lögreglumanna gegni mikilvægu hlutverki fyrir lögreglumenn og sé mikilvægur vettvangur faglegrar umræðu um störf lögreglunnar. „Forsætisráðherra fagnar af þeim sökum tækifæri til að skiptast á skoðunum við forsvarsmenn félagsins og kynnast sjónarmiðum þeirra. Báðir aðilar gera sér fulla grein fyrir því að lögregla getur aðeins sinnt starfi sínu fái hún til þess þann stuðning og það traust sem hún þarf af hálfu stjórnvalda og njóti auk þess velvilja almennings í landinu. Það er fullvissa forsætisráðherra að svo sé um lögregluna á Íslandi," segir að lokum.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps Erlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Fleiri fréttir Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Sjá meira