Innlent

Fimm innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt

Brotist var inn í tvö fyrirtæki, einn skóla og tvo bíla á höfuðborgarsvæðinu frá miðnætti og fram til klukkan sex í morgun. Alls staðar var verðmætum stolið og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum.

Af sporum og ummerkjum að dæma virðist sem sömu þjófar hafi verið á ferði í nokkrum tilvikanna, að minnsta kosti. Þjófarnir stálu flatskjám, hljómtækjum og skjávarpa en slíkur búnaður virðist vera gjaldmiðill í fíkniefnaheiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×