Innlent

Fimm milljónir til Srí Lanka

Fjöldi óbreyttra borgara hefur lagt á flótta vegna átakanna.
fréttablaðið/ap
Fjöldi óbreyttra borgara hefur lagt á flótta vegna átakanna. fréttablaðið/ap

Utanríkisráðuneytið mun veita fimm milljónir króna í neyðaraðstoð til flóttafólks á Srí Lanka. Aðstoðin verður veitt með milligöngu Rauða kross Íslands.

Þá skorar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á stríðandi fylkingar í landinu, stjórnarherinn og Tamíltígra, að vernda óbreytta borgara. Tugir þúsunda óbreyttra borgara hafa flúið átakasvæðin síðustu daga og Rauði krossinn telur að um 50 þúsund séu enn á yfirráðasvæði Tamíltígra. Ráðherra minnir á að báðum aðilum sé skylt að fara að alþjóðlegum mannúðarlögum.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×