Upplýsingum leynt í þágu sérhagsmuna 18. júní 2009 03:30 Aðalsteinn Hákonarson óttast að hagsmunir viðskiptavina endurskoðenda hafi verið svo miklir að þeir hafi gefið eftir til að vera viðskiptavinum sínum þóknanlegir. mynd/hari
Dæmi eru um að á undanförnum árum hafi eignir verið færðar inn á ársreikninga fyrirtækja á hærra verði en innstæða hafi verið fyrir. Þannig hafi verið reynt að leyna upplýsingum í þágu sérhagsmuna og í þágu stjórnenda fyrirtækjanna. Þetta segir Aðalsteinn Hákonarson, forstöðumaður eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra og endurskoðandi. „Eignir voru oft tilgreindar mun hærra en fengist hefði fyrir þær í sölu," segir Aðalsteinn. Óttast Aðalsteinn að hagsmunir viðskiptavina endurskoðenda hafi verið svo miklir að endurskoðendur hafið gefið eftir til að vera viðskiptavinum sínum þóknanlegir. Einnig segir hann að endurskoðendur hafi líklega ekki staðið nógu fast á bremsunni. „Viðskiptavinurinn getur alltaf sagt þeim upp ef hann er óánægður með niðurstöðu ársreikninganna," segir Aðalsteinn. Þóknanir til endurskoðunarfyrirtækja voru á undanförnum árum um fimmtán milljarðar króna á ári, að sögn Aðalsteins. Þriðjungur hafi verið þóknun fyrir eiginleg endurskoðendastörf en tveir þriðju annars konar þjónusta eins og skattaráðgjöf og skipting fyrirtækja upp í önnur minni fyrirtæki. „Það er viss tvískinnungur í því að vera með eftirlitið og vera einnig að ráðleggja viðskiptavininum," segir Aðalsteinn. Endurskoðendur firrtu sig oft ábyrgð í viðtölum eftir bankahrunið með því að vísa í alþjóðlega staðla, að mati Aðalsteins. Hann segir þessa staðla hins vegar vera túlkaða rúmt og kalla þar af leiðandi á skynsamlegt mat og rökvísi af hálfu þeirra sem beiti þeim. „Ég óttast að menn hafi gleymt ákveðnum boðorðum í þessum alþjóðlegu stöðlum við gerð ársreikninganna," segir Aðalsteinn. Vegna þeirra miklu hagsmuna sem endurskoðendur hafa af því að halda í viðskiptavini sína hefur Aðalsteinn lagt til að sett verði í lög að endurskoðendur verði skipaðir til fimm ára í senn og ekki sé hægt að víkja þeim úr starfi nema þeir hafi brotið af sér. Framkvæmdastjóri Félags löggiltra endurskoðenda vildi ekki tjá sig um málið.
Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Sjá meira