Seilst í vasa almennings til að fjármagna pólitísk gæluverkefni 5. október 2009 21:23 Árni Helgason formaður Heimdallar.
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum og skattamálum. Ljóst er að ríkisstjórnin fer leið skattahækkana í stað þess að taka til í rekstri ríkisins og fresta eða leggja af ýmis gæluverkefni og verkefni á vegum hins opinbera. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heimdalli nú í kvöld. Þar segir ennfremur að ókostir skattahækkana séu vel þekktir og nú sé sérstaklega brýnt í núverandi aðstæðum að íþyngja ekki launþegum og atvinnurekendum ofan á allt annað. „Aukin skattheimta mun draga úr ráðstöfunartekjum heimilanna, auka á samdráttinn í atvinnulífinu sem aftur leiðir til aukins atvinnuleysis. Hærri skattar þýða minni framleiðni þar sem hvatinn til athafna verður því minni sem skattprósentan er hærri. Þá er hætta við því að aukin skattheimta leiði til svartrar atvinnustarfsemi." Heimdallur hvetur ríkisstjórnina til að leita annarra og skynsamlegri leiða við að leiðrétta fjárlagahallann. Þá segir að mikil útþennsla ríkissjóðs undanfarin ári veiti svigrúm til niðurskurðar og hagræðingar í ríkisrekstri. „Ljóst er af fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar að ríkið er enn að verja almannafé í gæluverkefni. Það eru ótrúleg skilaboð á sama tíma og skattar eru hækkaðir á fjölskyldur í landinu sem berjast við að ná endum saman, að ráðherrar ríkisstjórnarinnar skammti sér tugi milljóna í ráðstöfunarfé. Að sama skapi er ráðist í ýmis verkefni sem bera ekki með sér að ríkissjóður sé í miklum vanda, t.d. að milljónum króna sé varið í ritun Biskupasögu og rekstur listskreytingarsjóðs, hálfum milljarði sé varið í „verðmiðlun landbúnaðarvara", tugum milljóna í „jöfnunarsjóð alþjónustu" og nokkrum milljónum í „garðávaxtasjóð", svo nokkur dæmi séu nefnd." „Þá telur stjórn Heimdallar miður hve illa stjórnvöld hafa tekið í hugmyndir um aukna tekjuöflun hins opinbera eftir öðrum leiðum en hækkun tekjuskatta, s.s. með því að skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóði. Sú aðgerð gæti fært ríkissjóði tugi milljarða í tekjur en hlaut ekki náð fyrir eyrum stjórnvalda. Fólkið í landinu stendur ekki undir frekari skattahækkunum eftir þau áföll sem á hafa dunið. Það er þversögn hjá ríkisstjórninni að ætla í öðru orðinu að aðstoða skuldugt, ungt fólk, en þyngja í hinu orðinu álögur á þennan hóp og gera því þannig erfiðara um vik að vinna sig út úr vandanum. Leiðin út úr kreppunni er verðmætasköpun. Heimdallur hvetur ríkisstjórnina til að skapa þau skilyrði að atvinnulífið geti starfað á ný. Þannig verða til fleiri störf með fleiri skattgreiðendum og fyrirtækjum sem starfa og greiða skatta."
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Sjá meira