Býður upp á hátíðarmatseðil Jóhönnu og Steingríms Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 18. júní 2009 16:30 „
Þetta er það sem að maður hefur um að velja þegar við erum búin að borga Icesave," segir kvikmyndagerðamaðurinn Magnús Magnússon sem ákvað að bjóða upp á hátíðarmatseðil fyrir utan Alþingishúsið í dag. Matseðillinn bar yfirskriftina: „Hátíðarmatseðill í boði Jóhönnu og Steingríms". Magnús mætti fyrst með kerru en á henni var dekkað borð með heilum þorski og ýsu. Þegar lögregla hafði afskipti af honum vegna þess hve fyrirferðamikil kerran var tók hann borðið og áróðursskilti sem einnig var þar og setti á túnið fyrir framan alþingi. Magnús segir mótmælin einnig til þess gerð að mótmæla inngöngu í ESB sem hann telur ekki vera góðan kost fyrir Íslendinga. „Ég er búinn að tala við fólk sem í Evrópusambandinu, bæði frá Svíþjóð og Færeyjum. Fólk segir að það sé brjálæði að vera þarna. Það segir: „Þið getið farið þarna inn og þið ráðið engu. Ef þig langar að vinna níu tíma þá máttu það ekki." Þarna verðum við brotin niður sem þjóð," segir Magnús. Hann efast einnig um hvaða hagsmunum ráðamenn eru að berjast fyrir. „Þeir vilja komast inn á Evrópuþingið því ef þeir eru þar í fjögur til fimm ár þá eru þeir á launum það sem eftir er. Þetta eru eiginhagsmunir út í eitt," segir Magnús. Magnús býður sem fyrr segir upp á þorsk og ýsu. „Já og svolítið af músum. Svo er náttúrulega naglasúpa. Hún verður aðalréttur 2020. Naglasúpa og tvö túlípanablöð sem Hollendingar færa okkur þegar þeir koma með haustskipinu 2020."
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Fleiri fréttir Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Sjá meira