Reyndi að nauðga vinkonu dóttur sinnar Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 18. júní 2009 16:57 Hæstiréttur dæmdi manninn í 15 mánaða fangelsi og til greiðslu skaðabóta upp á 600 þúsund krónur. Mynd/ Valli
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni sem dæmdur var í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa reynt að hafa samræði eða önnur kynferðismök við 16 ára stúlku sem var gestkomandi á heimili hans í apríl á síðasta ári. Stúlkan var vinkona dóttur mannsins en hún var í heimsókn ásamt tveimur öðrum vinkonum sínum. Maðurinn hafði komið ölvaður heim og lagst við hlið stúlkunnar þar sem hún lá sofandi í herbergi dóttur hans. Hann reyndi að gyrða niður buxur stúlkunnar og er hún vaknaði tók hann fyrir vit hennar og hótaði að meiða hana hefði hún ekki hljótt. Maðurinn lét ekki af háttsemi sinni fyrr en kona hans kom inn í herbergið og réðst á hann. Frásögn stúlkunnar var talin trúverðug og að öllu leyti í samræmi við framburð vitna. Talið var að háttsemi mannsins bæri þess skýr merki að fyrir honum hafi vakað að beita stúlkuna kynferðislegu ofbeldi. Yrði ekki við annað miðað en að tilviljun hafi ráðið því að honum hafi ekki tekist ætlunarverk sitt. Þá lá fyrir að stúlkan hafði átt erfitt uppdráttar eftir árásina. Refsing var ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var hann einnig dæmdur til greiðslu miskabóta til stúlkunnar sem ákveðnar voru 600.000 krónur. Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg Benediktsdóttir og Markús Sigurbjörnsson.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Fleiri fréttir Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Sjá meira