Innlent

Frjálshyggjufélagið telur ríkisafskipti hafa orsakað bankahrunið

Yfirlýsingar og áætlanir ríkisstjórnarinnar benda til þess að enginn lærdómur hafi verið dreginn af efnahagshruninu, að mati Frjálshyggjufélagsins. „Í stað þess að afnema ríkisafskipti þau sem keyrðu Ísland hraðar en flest lönd í djúpa niðursveiflu, þá eigi að halda áfram á sömu braut, bara á enn meiri hraða," segir í ályktun frá félaginu.

Þar hvetur Frjálshyggjufélagið nýja ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur til að hefjast þegar handa við endurreisn hins íslenska hagkerfis. Brýnustu aðgerðirnar séu ríflegar skattalækkanir, víðtækur niðurskurður á ríkisútgjöldum og afnám hafta á einkaframtaki.

Ríkið á ekki að gefa út mynt

Einnig telur félagið að taka þurfi peningamálastefnu ríkisins til gagngerrar og róttækrar endurskoðunar og skilja að ríki og hagkerfi. „Ríkið á hvorki að gefa út mynt né segja fyrir um hvaða myntir megi versla með í frjálsum viðskiptum. Skilyrði fyrir því að skattar séu greiddir í ákveðnum myntum ætti ekki að blanda saman við notkun frjálsra einstaklinga og fyrirtækja þeirra á hvaða myntum sem þeir kjósa."

Ríkisrekstur verði takmarkaður

Útþensla ríkisvaldsins, aukin skattheimta, ríkisafskipti og röng peningamálastefna eru bæði bein og óbein loforð núverandi ríkisstjórnar, segir í ályktuninni.

„Frjálshyggjufélagið harmar þessa stefnumörkun og leggur til að öllu vænlegri uppbyggingarstefna verði innleidd - stefna þar sem frjáls viðskipti fá að blómstra og ríkisreksturinn verði takmarkaður við örfá verkefni sem vel skal sinnt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×