Innlent

Höfuðborgarbúar í víking til Selfoss

Tvívegis kom til átaka á Hótel Selfossi í gærkvöldi og í nótt, þar sem starfslið af tveimur veitingahúsum af höfuðborgarsvæðinu héldu sameiginlega árshátíð.

Lögregla var kvödd á vettvang í bæði skiptin og tókst að stilla til friðar. Í síðara skiptið féllust mestu óróaseggirnir á að halda til herbergja sinna og fara að sofa, fremur en að þiggja gistingu í harðbýlum fangaklefum lögreglunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×