Innlent

Barist í Hlíðum

Til átaka kom milli tveggja hópa unglinga á mótum Mávahlíðar og Lönguhlíðar í Reykjavík, á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vitni töldu að sumir hefðu hampað bareflum og jafnvel hnífum. Hóparnir voru horfnir þegar lögregla kom á vettvang en við athugun í húsi fannst hnífur. Ekkert liggur þó fyrir um það hvort hann var hafður á lofti í átökunum. Enginn var handtekinn vegna málsins, en þetta mun vera í annað skiptið sem unglingahópar takast þarna á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×