Innlent

Sérsveitamaður gómar ökufant

Sérsveitarmaðurinn var ekki vopnaður né í fullum skrúða.
Sérsveitarmaðurinn var ekki vopnaður né í fullum skrúða.

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann á Reykjanesbrautinni sem ók á 177 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði eru 90 kílómetrar á klukkustund.

Það var sérsveitarmaður frá Ríkilögreglustjóranum sem mældi hraða bifreiðarinnar og var ökumaður stöðvaður skömmu síðar.

Hann var færður á lögreglustöðina í Reykjanesbæ þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Að sögn lögreglu höfðu þeim borst fjöldlinn allur af tilkynningum um ofsaakstur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×