Ólga meðal framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi 2. mars 2009 14:07 Frá flokksþingi Framsóknarflokksins í janúar.
Talsverðrar ólgu gætir meðal framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi vegna staðsetningar og fyrirkomulags kjördæmaþings þar sem frambjóðendur flokksins í komandi þingkosningum verða valdir. Flokksfélagi hefur dregið framboð sitt til baka og segir stjórn ráðsins reyna að tryggja stöðu Birkis Jóns Jónssonar og frambjóðanda á Austurlandi umfram aðra frambjóðendur.Prófkjör með einn kjörstað Kjördæmaþingið fer fram sunnudaginn 15. mars á Egilsstöðum og hafa allir flokksbundnir framsóknarnarmenn í kjördæminu atkvæðisrétt í þinginu. Guðlaug Kristinsdóttir, formaður Framsóknarfélags Akureyrar, segir að í rauninni sé um að ræða prófkjör í afar stóru kjördæmi með einungis einn kjörstað. Í byrjun seinustu viku sendu formenn aðildarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu bréf til stjórnar kjördæmaráðsins þar sem óskað var eftir utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna kjördæmaþingsins. Kjördæmið sé afar víðfemt og kostnaðarsamt sé að ferðast langar leiðir. Að auki treysti margir sér ekki til að leggja í langferðir í vetrarfærðinni. Beiðni flokksformannanna var hafnað í gær.Krafa um opnari flokk Guðlaug segir að óánægja sé innan flokksins. Heppilegra hefði verið að þingið færi fram í miðju kjördæminu, til dæmis í Mývatnssveit. Þá segir Guðlaug að tvær hliðar séu á öllum málum. ,,Það er krafa innan flokksins að hann sé opnari og að sem flestum flokksmönnum gefist tækifæri til að taka þátt og koma að ákvörðunum." ,,Að sjálfsögðu erum við ekki glöð en við unum þessari niðurstöðu," segir Guðlaug og bætir við að hún eigi von á því að Akureyringar og aðrir á framsóknarmenn á Eyjafjarðarsvæðinu fjölmenni á kjördæmisþingið á Egilsstöðum.Dregur framboð sitt til baka Bernharð Arnarson, bóndi að Auðbrekku í Hörgárdal, sem hafði áður lýst yfir framboði hefur dregið framboð sitt til baka. Ástæðan sé ólíðandi framganga stjórnar kjördæmisráðsins sem jafnframt sé studd af landsstjórn flokksins. Ákvarðanir hennar séu í andstöðu við jafnræðissjónarmið og samræmist ekki gildum Framsóknarflokksins. Bernharð segir að í stjórninni sitji fjórir Austfirðingar, tveir Eyfirðingar og einn Húsvíkingur. Þá segir Bernharð augljóst að stjórnin geri allt til að tryggja stöðu ákveðinna frambjóðenda umfram aðra. ,,Það er altalað og vitað að Austfirðingar sækjast eftir sætum á listanum og að Austfirðingar eru stuðningmenn Birkis Jóns Jónssonar í fyrsta sætið."
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira