Líkur á vorkosningum aukast 22. janúar 2009 05:30
Meirihluti þingflokks Samfylkingar hefur, ýmist nú eða fyrir áramót, sagst vilja kosningar í vor. Um leið verða efasemdaraddir um núverandi stjórnarsamstarf háværari meðal þingmanna flokksins. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður flokksins, sagðist í gær vilja kjósa í vor. „Kosningar eru nauðsynlegur liður í þeirri uppbyggingu sem nú fer í hönd," segir Ágúst. Stjórnarsamstarfið var rætt á þingflokksfundi flokksins í gær. Lúðvík Bergvinsson sem er formaður þingflokksins segir að taka eigi hugmyndir varaformannsins um vorkosningar til skoðunar. „Það var mikill einhugur um það að vinna þjóðinni eins vel og nokkur er kostur, hlusta á hana og fylgja hennar ráðleggingum." Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist skilja kröfu almennings um kosningar. „Ríkisstjórnin hefur unnið sér inn reiði almennings með því að standa ekki við þær hreinsunaraðgerðir sem menn hafa viljað; til dæmis hvað varðar Seðlabankann og þá sem bera ábyrgð á bankahruninu." Þingmennirnir Karl V. Matthíasson og Guðbjartur Hannesson sögðust í samtali við Fréttablaðið vera opnir fyrir kosningum í vor. Áður höfðu Björgvin G. Sigurðsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Katrín Júlíusdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Ellert B. Schram öll tekið í svipaðan streng. - kóp, ss
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira