Bætir tilfinningum við takta 27. ágúst 2009 06:00 þorvaldur þór þorvaldsson Platan er bæði melódísk og tilfinningaþrungin, enda er Þorvaldur tilfinningarík manneskja. fréttablaðið/gva
Fyrsta plata trommuleikarans Þorvaldar Þórs Þorvaldssonar er komin út. Þorvaldur sækir innblástur sinn í ýmsar tónlistarstefnur, þar á meðal popp, djass og hip-hop, og var platan tekin upp á meðan hann bjó í Bandaríkjunum. „Ég var að læra úti og var búinn að vera að semja tónlist alltaf mjög stöðugt samfara námi. Ég var orðinn mjög óþreyjufullur að koma þessu efni frá mér,“ segir hann. Þorvaldur útskrifaðist með mastersgráðu í tónlist frá New England Conservatory í Boston árið 2007. Þar áður hafði hann útskrifast með BA-gráðu frá University of Miami árið 2005. Að námi lokni flutti Þorvaldur til New York þar sem hann bjó í hálft annað ár og starfaði með ýmsum tónlistarmönnum og ferðaðist með þeim víða um Bandaríkin. Um síðustu ármót söðlaði hann um og flutti aftur til Íslands. Áður en Þorvaldur flutti til Bandaríkjanna, var hann mjög virkur í íslensku tónlistarlífi og var meðlimur í ýmsum hljómsveitum, jafnt í djass- og poppgeiranum. „Ég var svolítið í poppinu í gamla daga og sveitaballabransanum. Það var mjög góð reynsla að vera í sveitaballabransanum á Íslandi. Það er ágætt að hafa prófað það,“ segir hann. „Ég er búinn að sanka að mér reynslu héðan og þaðan. Þegar ég bjó í New York var ég að spila með ýmsum tónlistarmönnum. Það var mjög athyglisvert líka að prófa það hark. Það var mjög erfitt og það er miklu erfiðara að lifa af í New York en í Reykjavík.“ Með Þorvaldi leika á plötunni nokkrir af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar, þeir Eyþór Gunnarsson, Óskar Guðjónsson, Ómar Guðjónsson og bandaríski bassaleikarinn Jon Estes. Þorvaldur segir að platan sé mjög melódísk og tilfinningaþrungin. „Tónsmíðarnar eru mjög persónulegar og stjórnast svolítið af tilfinningum mínum og hvernig mér líður hverju sinni. Ég er mjög tilfinningarík manneskja og ég elska tilfinningar mínar, ég neita því ekki,“ segir hann og bætir við að platan sé einnig bæði rythmísk og taktföst. „Lögin byggja oftar en ekki á einum takti og tilfinningu. Ég er oft með grúv í huga og svo er það hvernig mér líður sem stjórnar músíkinni ofan á grúvið.“ -fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira