Innlent

Vinstri grænir styðja ekki frumvarp Össurar

Steingrímur J. Sigfússon og Össur Skarphéðinsson.
Steingrímur J. Sigfússon og Össur Skarphéðinsson.

Vinstrihreyfingin grænt framboð styður ekki frumvarp iðnaðarráðherra um heimild til samninga um álver í Helguvík. Steingrímur J. Sigfússon reiknar þó með að frumvarpið nái fram að ganga með stuðningi stjórnarandstöðunnar.

Össur Skarphéðinsson iðanaðarráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um heimild til ríkissjóðs að ganga til samninga um byggingu álvers í Helguvík. Iðnaðarráðherra hefur lagt mikla áherslu á þetta mál vegna þess að álver í Helguvík sé mikilvægur stuðningur við atvinnulífið í landinu. Fjármálaráðherra á hins vegar ekki von á að nokkur þingmaður Vinstri grænna greiði frumvarpinu atkvæði sitt.

Steingrímur sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun málefni Helguvíkur arf frá fyrri ríkisstjórn og Vinstri grænir hafi vitað hvar málið stóð þegar flokkurinn fór í ríkisstjórn og að málinu yrði ekki breytt. Iðnaðarráðherra hafi gert sér grein fyrir andstöðu vinstri grænna við málið.

Steingrímur reiknar þó með að þingmeirihluti sé fyrir frumvarpinu og að það nái fram að ganga með stuðningi stjórnarandstöðunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×