Fjölþættar aðgerðir til að rétta fjármálakerfið við 10. febrúar 2009 18:40
Ríkisstjórnin kynnti í morgun fjölþættar aðgerðir til að rétta við fjármálakerfið í landinu og sem eiga að auðvelda einstaklingum of fyrirtækjum að standa undir aukinni skuldabyrði. Forsætisráðherra viðurkennir að margt sé sótt í smiðju síðustu ríkisstjórnar, sem hins vegar hafi þjáðst af ákvarðanafælni. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að stofnuð verði eignaumsýslufélög sem eiga að taka yfir eignir stærstu fyrirtækjanna sem lenda í vandræðum innan bankakerfisins, til að tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækja sem teljast mikilvæg fyrir þjóðarhag. Þá samþykkti ríkisstjórnin starfsáætlun fyrir svo kallaða samræmingarnefnd sem í eiga sæti sænskur sérfræðingur í bankahruni, fulltrúar ráðuneyta, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabankans, sem hefur umsjón með helstu efnahagsaðgerðum. Sú áætlun verður kynnt nánar á morgun. Ríkisstjórnin samþykkti einnig að ráða erlenda ráðgjafa sem aðstoði ríkistjórnina í viðræðum erlendra kröfuhafa við skilanefndir gömlu bankanna, sem margir hverjir hafa sterka aðila á sínum snærum. Fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra munu leggja fram nauðsynleg lagafrumvörp vegna þessara aðgerða í vikunni. Forsætisráðherra boðaði einnig innan fárra daga aðgerðir vegna gjaldþrota heimila og greiðslujöfnun vegna myntkörfulána. Þá mun ríkisstjórnin leggja fram frumvarp um séreignasparnað, sem heimilar eigendum hans að sækja um að taka út hluta hans frá væntanlegum gildistíma laganna hinn 1. mars næst komandi fram á haustið 2010. Heildarinneignir eru um 300 milljarðar og reiknar fjármálaráðherra með að allt að 80 til 90 milljarðar verði leystir út með þessum hætti fram til 2011. Þetta fé yrði greitt út í áföngum að frádregnum tekjuskatti og jafnræðis gætt svo staða þeirra sem ekki taka sparnaðinn út skerðist ekki. Margt hafi verið í undirbúningi hjá fyrri stjórn en aðgerðir látið á sér standa.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira