Innlent

Spyr um þinghald

Guðjón Arnar 
Kristjánsson
Guðjón Arnar Kristjánsson

„Ég tel þörf á því að forystumenn allra flokka verði nú kallaðir saman hið fyrsta,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. „Það þarf að ákveða hvaða mál á að fara með í gegnum þingið áður en því verður slitið og menn hefja sína kosningabaráttu.

Síðan þætti mér eðlilegt að við fengjum einhverja áfangaskýrslu frá sannleiksnefnd áður en gengið er til kosninga jafnvel þótt hún eigi ekki að skila fyrr en í nóvember.“ Síðan vék hann að veikindum forsætisráðherra. „En mér er eins og mörgum öðrum mjög brugðið og ég óska þess að allt fari á besta veg hjá Geir H. Haarde.“- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×