Sakaði samstarfskonu um að halda að sér ilmolíu 12. október 2009 16:05 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið í skaðabótamáli vegna ólöglegrar uppsagnar konu á fertugsaldri hjá Vinnumálastofnun Suðurnesja. Konunni var sagt upp í lok júlí 2008. Nokkrum mánuðum fyrr var hún áminnt í starfi meðal annars á þeim forsendum að hún átti í alvarlegum samstarfsörðugleikum við samstarfskonu sína. Sú deila upphófst árið 2006, ári eftir konan hóf störf hjá Vinnumálastofnun. Þá kom samstarfskona hennar með ilmolíu inn á vinnustaðinn. Sú rekna vildi meina að hún hefði fengið heiftarlegt ofnæmiskast í kjölfarið. Í dómsorði segir að ilmolían hafi í kjölfarið verið fjarlægð af vinnustaðnum. Segir svo í dómsorði að konan hafi aftur fengið ofnæmiskast í desember 2006 og rakið það til sömu olíunnar, en þá hafi ilmolían ekki lengur verið til staðar á vinnustaðnum. Samstarfsörðugleikar voru slíkir að mati Vinnumálastofunarinnar að hún hafi ekki mátt við þeim, þar sem vinnuálag hafi þá verið mikið. Hafi verið haldnir fundir í febrúar og mars 2007 til að ræða starfsmannamálin. Um áramótin 2007-2008 hafi konan aftur farið að finna einhverja óþægilega lykt og hafi viljað athuga hvort hægt væri að rekja hana til rakspíra yfirmanns Vinnumálastofnunnar Suðurnesja eða ilmvatns samstarfskonunnar. Svo virðist sem ekkert lát hafi verið á deilum hennar við samstarfskonu sína en í eitt skiptið mun hún hafa sakað hana um að vera óhæfa og hún ylli ekki starfi sínu. Auk þess hafi hún lýst þeirri skoðun sinni að samstarfskona sín væri vísvitandi að bera ilmolíu inn á vinnustaðinn og hella í klósettið til þess að valda sér skaða. Henni var sagt upp síðar. Sú rekna var mjög ósátt og taldi að ofnæmið hafi meðal annars verið talið henni til ámælis. Fram kemur í dóminum að konunni hafi verið veitt áminning í starfi sínu en hún hafi ekki viljað taka við henni. Sjálf segist hún ekki hafa fengið að andmæla áminningunni. Því taldi hún uppsögninni ólöglega. Sjálf vildi hún þrjár og hálfa milljón í skaðabætur. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að háttsemi konunnar, verði að mati dómsins að teljast samstarfsörðugleikar sem geti haft verulegt vægi við mat á starfsárangri. Háttsemin hafi ekki verið Vinnumálastofnun í hag og því var áminningin lögum samkvæm. Ríkið var sýknað en málskostnaður fellur niður í málinu.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Sjá meira