Enn neitað um sæti við samningaborðið 12. október 2009 04:00 Á síldveiðum Kap VE veiddi sýkta síld inni í Vestmannaeyjahöfn í vetur. Uppsjávartegundir okkar, vorgotssíldin, norsk-íslenska síldin, loðna, kolmunni og nú síðast makríll og gulldepla, færa þjóðarbúinu mikil verðmæti.fréttablaðið/óskar
Ísland hefur afþakkað boð um að senda áheyrnarfulltrúa á fund strandríkja um heildarstjórnun makrílveiða síðar í þessum mánuði. Fundarboðendum var tilkynnt að Ísland tæki ekki þátt í slíkum fundi nema sem fullgilt strandríki. Fyrir ári þáði Ísland boð um að senda áheyrnarfulltrúa á fund strandríkjanna um stjórnun veiða úr makrílstofninum. Þá hafði óskum um sæti sem fullgilt strandríki á fundunum verið ítrekað hafnað í áratug. Hins vegar ber ríkjunum skylda til að semja við Íslendinga um stjórn makrílveiðanna samkvæmt Hafréttarsáttmála SÞ og úthafsveiðisamningnum. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir fullgilda aðild Íslands frumforsendu þess að að einhver möguleiki sé á því að ná viðunandi samningi. Hann segir eina svarið við þessari afstöðu annarra strandríkja vera það að veiða meiri makríl á næsta ári. „Það er ekkert því til fyrirstöðu að ákveða veiðiheimildir eins og gert var á þessu ári. Veiðarnar verða þó að vera skipulagðar á ábyrgan hátt og fyrirkomulagið frá því í sumar má ekki viðhafa áfram.“ Hér vísar Friðrik til þess að makríllinn var veiddur í kraftaveiði og fór mikið af honum í bræðslu. Ef vinnsla til manneldis væri aukin mætti auka útflutningsverðmæti aflans um milljarða. Dreifing makríls við Ísland hefur verið rannsökuð ítarlega í sumar. Niðurstaðan er að makríl er að finna allt í kringum landið. Svo mikið var magnið að kvótinn, 113 þúsund tonn, veiddist upp á örfáum vikum. Umrædd strandríki, Norðmenn, Færeyingar og Evrópusambandið, hafa tekið sér kvóta í tegundinni sem er langt umfram veiðiráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES). Veiðiráðgjöfin fyrir 2009 er 443-578 þúsund tonn en löndin ákváðu að veiða 642 þúsund tonn. Hluti kvóta þeirra er ákveðinn einhliða. Friðrik hefur bent á þessa staðreynd. „Strandríkin hafa gagnrýnt makrílveiðar okkar harkalega með vísan til þess að þær séu ekki lögmætar,“ segir Friðrik. „Öllum hlýtur að vera ljóst að Ísland er strandríki og veiðar í okkar lögsögu byggja á sömu rökum og réttur Norðmanna og aðildarríkja ESB til að veiða makríl í sinni lögsögu,“ segir hann. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Ráðherra með „fráleita hótun“ Innlent Fleiri fréttir Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Sjá meira