Háir vextir halda uppi verðlagi Heimir Már Pétursson skrifar 7. maí 2009 18:30
Lækkun stýrivaxta hefur engin áhrif á eldri húsnæðislán en leiðir til lækkunar dráttarvaxta og vaxta á yfirdráttarlánum. Forseti ASÍ segir háa vexti halda uppi verðlagi og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að keyra hefði átt stýrivextina niður í 2,5 prósent og láta krónuna taka skellinn. Stýrivextir á Íslandi eru enn þeir hæstu í heiminum eftir lækkun þeirra í dag. Heimilin í landinu munu finna takmarkað fyrir lækkun þeirra til skemmri tíma. Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) segir Seðlabankann vissulega vera að lækka vexti og það muni létta á skammtímalánum eins og yfirdráttarlánum. Þá ættu dráttarvextir að lækka mjög hratt. "En varðandi þegar tekin lán eins og húsnæðislán breytir þetta ekki miklu," segir Gylfi. Gylfi segir svo lítið skref stigið með lækkuninni, að hún nái ekki að byggja upp jákvæðar væntingar hjá heimilum og fyrirtækjum. "Ég held að við þessar aðstæður núna geti vaxtamunur milli íslensku krónunnar og t.d. evruvaxtanna ekki verið meiri en fjögur prósentustig. Það þýðir að stýrivextirnir hefu þurft að fara í 5,25 prósent en ekki 13," segir Gylfi. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins vill ganga enn lengra, því með þessu vaxtastigi þori fyrirtækin hvorki að fjárfesta né ráða til sín fólk. "Í stað þess að lækka vexti um 2,5 prósentur ættu stýrivextirnir að vera 2,5 prósent," segir Vilhjálmur. Allir eru sammála um að við slíka lækkun hefði gengi krónunnar fallið mjög mikið. Vilhjálmur telur að þau áhrif yrðu mjög tímabundin en jákvæð til lengri tíma. "Það sem skiptir máli er hvort við höfum langtímasýn á það sem er að gerast í atvinnulífinu og hvort við höfum trú á framtíðina. En með þessum háu stýrivöxtum og gjaldeyrishöftunum erum við alltaf að hjakka í sama farinu. Vandamálin hanga yfir okkur og það gerist ekki neitt," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Sjá meira