Gætu verið útrásarvíkingar sem óttast frystingu eigna 9. desember 2009 06:00 Þórólfur Matthíasson prófessor. Mynd/Auðunn Níelsson „
Það eru óþolinmóðir Íslendingar og óþolinmóðir útlendingar, sem voru lokaðir inni með gjaldeyrishöftunum sem hafa farið þarna út," segir Þórólfur Matthíasson prófessor, spurður hvað hann lesi út úr upplýsingum sem fram hafa komið á Alþingi um að fjárhæðir meintra gjaldeyrissvika, sem Seðlabankinn rannsakar nemi 57,5 milljörðum króna á 10 mánaða tímabili. Hann segir að erlendu aðilarnir geti verið jöklabréfaeigendur. „En að því marki sem þetta eru óþolinmóðir Íslendingar, gætu það verið útrásarvíkingar sem óttast frystingu eigna sinna." Skráð gengi evru var í gær um 183 krónur en þá var sölugengi á hinum óskráða aflandsmarkaði komið í 291 krónu. Þórólfur segir það háa verð til marks um að lítið framboð sé á nú krónum til að koma á viðskiptum á aflandsmarkaðnum. Þórólfur segir að ávinningur þeirra sem standa á bak við gjaldeyrissvikin sé í mesta lagi helmingur af heildarfjárhæðinni og líklega mun minna. „Það er rétt að hafa í huga að tölurnar verða fljótt mjög stórar ef litið er á brúttóupphæð viðskiptanna, en í leiðinni er verið að selja vöru og þjónustu," segir hann. „Ávinningurinn er í hæsta lagi helmingur og sennilega töluvert undir því." Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það hafi komið sér á óvart hve upphæð meintra gjaldeyrissvika var há. „En maður hefur heyrt að margir hafi grætt ótrúlegar fjárhæðir á þessu," segir Ásbjörn.- pg
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira