Þúsund störf gætu bjargast 7. maí 2009 07:00 Halldór Halldórsson.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍSF) mun reyna að ná samstöðu meðal sveitarstjórnarmanna um að laun starfsmanna verði lækkuð um fimm prósent í stað þess að segja fólki upp starfi í þeim óumflýjanlega niðurskurði sem er fram undan. Hugmyndin verður kynnt á samráðsfundi í næstu viku þar sem fjárhagsstaða sveitarfélaganna verður rædd. „Niðurskurður, sem er óumflýjanlegur, kemur að stærstum hluta niður á starfsfólki sveitarfélaganna, enda eru laun stærstur hluti af rekstrarkostnaði. Við viljum forðast uppsagnir í lengstu lög og því viljum við veita þeirri hugmynd brautargengi að laun verði lækkuð hjá öllum starfsmönnum sveitarfélaganna í landinu um fimm prósent á móti tíu frídögum á ári," segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, sem er jafnframt formaður SÍFS. „Þetta er leið til sparnaðar sem gæti gert sveitarfélögunum kleift að komast hjá uppsögnum." Hjá sveitarfélögunum vinna tæplega 20.000 manns og launakostnaður er um 80 milljarðar króna. Það þýðir fjögurra milljarða króna sparnað fyrir sveitarfélögin í landinu, gróft reiknað, og að eitt þúsund störfum yrði bjargað næðist samstaða um fimm prósent leiðina í stað uppsagna. Halldór telur að það sé keppikefli allra í samfélaginu að verja störf fólks og bendir á að fjölmörg einkarekin fyrirtæki hafi farið þessa leið. Hugmyndin á vettvangi sveitarfélaganna kom upphaflega frá Akureyrarbæ, en bæjarráð Ísafjarðarbæjar samþykkti jafnframt ályktun þess efnis í byrjun apríl, að leiðin komi vel til greina. Jafnframt kemur fram í bókun að mikilvægt sé að samstaða myndist meðal sveitarfélaga og við launþega um þetta samstillta átak. „Við viljum taka þessa hugmynd, ræða hana og útfæra. Ekki fyrir einhverjar sérstakar stéttir heldur fyrir starfsmenn sveitarfélaganna almennt. Það er erfitt að útfæra þessa hugmynd þannig að hún henti 78 sveitarfélögum, en við erum að vinna í því," segir Halldór. Samkvæmt fréttum hafa fjölmargar niðurskurðarleiðir verið ræddar á milli stjórnarflokkanna að undanförnu, enda stendur fyrir dyrum að loka 170 milljarða króna fjárlagagati á næstu þremur árum. Ríkisstarfsmenn eru 22 þúsund talsins og samkvæmt upplýsingum frá Fjársýslu ríkisins er launakostnaður 110 milljarðar á ársgrundvelli. Fimm prósent leiðin myndi því spara ríkinu allt að 5,5 milljarða króna á ári. - shá
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Sjá meira