Woods biðst afsökunar 3. desember 2009 06:00 Tiger Woods og fjölskylda eiga ekki sjö daga sæla um þessar mundir. Fjöldi kvenna hefur komið fram og vilja þær meina að Woods sé mikill glaumgosi sem hafi aldrei verið konu sinni trúr. Fyrst bárust sögur af sambandi Woods og Rachel Uchitel sem sést hér.
Lögreglan í Flórída tilkynnti í gær að kylfingurinn Tiger Woods yrði ekki ákærður fyrir að sýna gáleysi undir stýri, en eins og kunnugt er orðið ók hann bíl sínum á brunahana og inn í garð nágranna sinna. Honum var þó gert að greiða 164 dali í sekt. Fjölmiðlar hið vestra fylgjast þó enn grannt með málum og hefur Linda Adams, nágranni Woods, þurft að ráða lögfræðing vegna ágangs þeirra. Adams var sú sem hringdi á lögregluna nóttina sem slysið átti sér stað og því telja fjölmiðlar að hún gæti mögulega lumað á frekari upplýsingum. Hvað Rachel Uchitel varðar birtist síðulangt viðtal við hana í New York Times þar sem hún þvertekur fyrir að hafa átt í sambandi við Woods. „Þetta er lygi. Tiger sagðist aldrei elska mig. Stúlkurnar sem seldu söguna eru heimskar dræsur. Þetta er heimskulegt, ég hef aldrei fengið smáskilaboð frá Tiger og hef aldrei rætt við hann í síma.“ Hins vegar hefur önnur stúlka nú stigið fram og viðurkennt að hafa átt í áralöngu sambandi við kylfinginn. Stúlkan, sem starfar sem gengilbeina í Las Vegas, segist fyrst hafa hitt Tiger árið 2007 og að þau hafi síðan þá hist reglulega, síðast fyrir aðeins tveimur mánuðum. Stúlkan, Jaimee Grubbs, segist búa yfir fjölda smáskilaboða og talskilaboða frá Woods sem sanni mál hennar. Í gær steig svo þriðja stúlkan fram og sagðist einnig hafa átt í sambandi við Woods. Kalika Maquin, framkvæmdastjóri skemmtistaðarins The Bank í Las Vegas, eyddi helgi með Woods í október síðastliðnum. Hún neitaði þó að tjá sig frekar um atvikið við fjölmiðla. Í kjölfar þessara ásakana sendi Woods frá sér tilkynningu í gær þar sem hann sagðist sjá eftir brotum sínum. „Ég hef sært fjölskyldu mína. Ég er ekki gallalaus og langt frá því að vera fullkominn. Ég tekst nú á við hátterni mitt og mín persónulegu mistök í einrúmi ásamt fjölskyldu minni.“
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið Fleiri fréttir „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Sjá meira