Lögreglan minnir á bensínstöðvarnar 29. janúar 2009 13:29
Lögreglan brýnir fyrir ökumönnum að fylla bensíntankinn og taka ekki óþarfa áhættu með því að reyna að komast frá A til B á síðustu dropunum. Slíkt getur beinlínis verið hættulegt. „Það er heldur óskemmtileg reynsla að verða bensínlaus á miðri leið þegar farið er á milli staða. Slík tilfelli koma á borð lögreglu af og til en reynt er að greiða úr vanda fólks eins og mögulegt er," segir í tilkynningu frá lögreglunni. „Eitt nýjasta dæmið af þessu tagi átti sér stað í Ártúnsbrekkunni á háannatíma, eða mitt í morgunumferðinni. Þar hafði ökutæki staðnæmst með tilheyrandi töfum fyrir þá sem á eftir komu. Lögreglan brást skjótt við og spurði ökumanninn hvað amaði að. Sá sagði að bíllinn væri bensínlaus og því kæmist hann hvergi. Hinn sami sagði jafnframt að honum hefði verið fullljóst að mjög lítið bensín hefði verið á bílnum en hann ákvað samt að reyna að komast í vinnuna," segir í tilkynningunni. „Maðurinn komst reyndar í vinnuna þennan morgun en það var seint og um síðir. Hefði hann sýnt fyrirhyggju og tekið bensín í tíma hefði mátt komast hjá þessum óþægindum sem voru með öllu óþörf. Með trassaskapnum tafði hann einnig fyrir öðrum vegfarendum svo ekki sé nú minnst á slysahættuna. Ekki er hlaupið að því að fjarlægja ökutæki við þessar aðstæður og það getur beinlínis verið lífshættulegt," segir einnig.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira