Ólína fær ekkert að vita um skuldameðferð sjávarútvegsfyrirtækja 29. desember 2009 10:34 Ólína Þorvarðardóttir. Mynd/Pjetur
Ekkert verður gefið upp um skuldameðferð íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í íslensku bönkunum af hálfu efnahags- og viðskiptaráðherra. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Ólínu Þorvarðardóttur þingkonu Samfylkingarinnar. Ólína vildi vita hve mikið af skuldum útgerðarfyrirtækja varð eftir í þrotabúum gömlu bankanna þriggja, sundurliðað eftir bönkum. Ólína spurði einnig hve stór hluti skulda útgerðarfyrirtækja fluttist yfir í nýju bankana þrjá, sundurliðað eftir bönkum og hvaða verklagsreglur voru viðhafðar við mat á yfirfærslu skulda sjávarútvegsfyrirtækja úr gömlu bönkunum í þá nýju. Þá spurði þingmaðurinn hvort lán sjávarútvegsfyrirtækja hafi verið afskrifuð eftir bankahrunið, og ef svo er, í hve miklum mæli. Og að síðustu var spurt hvort lán sjávarútvegsfyrirtækja hafi verið fryst eftir bankahrunið, „og ef svo er hvaða upphæðir er um að ræða og til hve langs tíma?" Í svarinu er bent á að bankarnir hafi verið almenn hlutafélög á markaði þar til í október 2008. „Þó svo að Fjármálaeftirlitið, á grundvelli laga nr. 125/2008, hafi gripið inn í rekstur bankanna voru þeir eftir sem áður viðskiptabankar á samkeppnismarkaði. Viðskiptabankar lúta reglum laga um fjármálafyrirtæki og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og reglum settum á grundvelli þeirra, m.a. um meðferð trúnaðarupplýsinga. NBI hf., Arion banki hf. og Íslandsbanki hf. eru einnig hlutafélög og þótt ríkissjóður eigi, eða kunni að eignast, hlutabréf í einhverjum þeirra, eða öllum, lúta þeir lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Fer fjármálaráðherra með hluti ríkissjóðs í þessum viðskiptabönkum." Þá segir að efnahags- og viðskiptaráðuneytið hafi ekki undir höndum neinar upplýsingar um starfsemi einstakra fyrirtækja á fjármálamarkaði „né hefur það undir höndum upplýsingar um skuldir einstakra viðskiptamanna bankanna. Eftirlit með starfsemi á fjármálamarkaði er í höndum Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, utan lausafjáreftirlit sem Seðlabanki Íslands hefur á sinni könnu."
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira