Innlent

Eldisfiskur fimmta hvern dag

sláturtíð Þorski slátrað hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru.mynd/valdimar
sláturtíð Þorski slátrað hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru.mynd/valdimar

Allt stefnir í að fimmtungur af þeim rúmlega 5.100 tonnum af hráefni sem unnið er úr í landvinnslu Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal og á Ísafirði á þessu ári komi úr þorskeldi. Fyrirtækið hefur stundað þorskeldi undanfarin ár en þetta hlutfall hefur að sögn Einars Vals Kristjánssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, aldrei verið hærra.

„Þetta er að sjálfsögðu ánægjulegur áfangi því eldisþorskurinn hefur staðið undir fimmta hverjum vinnudegi hjá okkur. Þá er það ekki síður ánægjulegt frá okkar bæjardyrum séð, að ekki hefur fallið niður dagur í landvinnslunni á árinu sem er að líða,“ segir Einar Valur. Hann segir að fara þurfi langt aftur í tímann til að finna dæmi um meira magn hráefnis til vinnslunnar en á þessu ári.

Góður árangur í þorskeldinu nægir þó engan veginn til þess að vega upp boðaðan niðurskurð í veiðiheimildum á bolfiski á yfirstandandi fiskveiðiári. Einar Valur segir að samkvæmt útgefnum kvóta muni veiðiheimildir fyrirtækisins verða um 1.400 tonnum minni á þessu fiskveiðiári en á því síðasta. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×