Innlent

Skvettu skyrsúpu á orkufulltrúa

Kynningafulltrúar fengu sinn skerf af skyrinu þó þeir hafi látið vera að bragða á því. Mynd/student.is
Kynningafulltrúar fengu sinn skerf af skyrinu þó þeir hafi látið vera að bragða á því. Mynd/student.is

Lögreglan var kvödd upp á Háskólatorg í morgun eftir að þrír mótmælendur skvettu grænni skyrsúpu yfir kynningarbása sem þar voru. Samkvæmt lögreglunni fór maturinn yfir borð með tilheyrandi kynningarefni sem og fulltrúanna sjálfa. Að auki er grunur um að tölvubúnað hafi skemmst.

Mótmælin beindust gegn orkufyrirtækjum sem voru í boði Grænna daga sem er á vegum nemandafélagsins Gaia í háskólanum en fyrirtækin voru Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun, Metan, Geysir Green Energy og fleiri. Þau hugðust kynna umhverfisvæna orku.

Samkvæmt varðstjóra var ekki búið að handtaka neinn og færa niður á lögreglustöð en fram kom á fréttavef RÚV að einn maður hefði verið handtekinn vegna málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×