Niðurskurður mun bitna verulega á barnafjölskyldum Höskuldur Kári Schram skrifar 5. desember 2009 13:04 Sóley Tómasdóttir.
Barnafjölskyldur munu finna verulega fyrir þeim niðurskurði sem Reykjavíkurborg hefur boðað á næsta ári að sögn borgarfulltrúa Vinstri grænna. Seinka á inntöku barna í leikskóla og þá verða frístundaheimili lokuð fyrir hádegi - sextán daga á ári. Reykjavíkurborg ætlar að spara 3,3 milljarð á næsta ári með hagræðingu í stjórnsýslu og rekstri en þar af er leikskóla og menntasviði gert að spara rúma einn milljarð. Borgarstjóri hefur fullyrt að börn muni ekki finna fyrir niðurskurðinum. Því er borgarfulltrúi Vinstri grænna, Sóley Tómasdóttir, ósammála. „Það er alveg ljóst að börn koma til með að finna fyrir niðurskurðinum og fullyrðingar um að þetta komi ekki til með að skerða þjónustu við þau eru alveg úr lausu lofti gripnar það segir sig sjálft að niðurskurður af þessari stærðargráðu sem við erum að fara í núna kemur kemur að sjálfsögðu til með að bitna á börnum." Sóley bendir á að til standi að seinka inntöku barna á leikskóla - þannig að börn sem fram til þessa hafa verið tekinn inn frá vori og fram á haust verða framvegis öll tekin inn að hausti. Þetta kalli á aukinn kostnað foreldra þar sem börn þurfa að dvelja lengur hjá dagmæðrum. Þá verður frístundaheimilum lokað fyrir hádegi í kringum stórhátíðir og starfsdaga kennara. „Sem þýðir að börn í 1. til 4. bekk verða í reiðileysi eða foreldrar þurfa að bjarga þeim dögum sjálfir 16 daga á ári," segir Sóley. Vinstri grænir vilja hækka útsvar til að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu en því er meirihluti borgarstjórnar ósammála. „Þannig að í staðinn fyrir að auka álögur á borgarbúa alla með útsvarshækkun eins og við höfum lagt til þá er verið að auka álögur á suma. Sennilega þá hópa sem síst skyldi auka álögur á," segir Sóley að lokum.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira