Klámkóngur ákærður fyrir fjárdrátt 15. janúar 2009 11:31 Sigurður Valdimar Steinþórsson.
Sigurður Valdimar Steinþórsson, sem þekktastur er fyrir að reka vefsíðuna klam.is, hefur verið ákærður fyrir að hafa á árinu 2005 dregið sér fjármuni í starfi við móttöku drykkjarumbúða á endurvinnslustöðvum Sorpu. Samkvæmt ákæru millifærðu Sigurður og Andrés Garðar Andrésson, fjármuni úr sjóði félagsins heimildarlaust af bankareikningi félagsins inn á bankareikninga sína og leyndu fjártökunum með því að útbúa tilhæfulausar kvittanir um skil á drykkjarumbúðum að samsvarandi fjárhæð. Samkvæmt ákæru dró Sigurður sér rúmar 450 þúsund krónur og krefst Sorpa þess að fá peningana greidda til baka ásamt vöxtum. Andrés dró sér tæpar 800 þúsund krónur, en hefur greitt þær til baka samkvæmt heimildum Fréttastofu. Tjáði sig meira um klámblað en ákæru Málið var þingfest á mánudag, en í samtali við Fréttastofu vildi Sigurður lítið tjá sig um málið. Hann greindi hins vegar frá því að hann væri hættur við framleiðslu klámmyndar sem hann hugðist byrja á sumarið 2007, þegar allt lék í lyndi í efnahagsmálum þjóðarinnar. Sagði Sigurður að hugmyndin hefði dottið upp fyrir en í staðinn væri hann með útgáfu klámblaðs í smíðunum. „Fyrst að Bleikt og blátt datt upp fyrir er kominn grunnur fyrir því aftur," segir Sigurður. Hann segir að undirbúningur að útgáfu blaðsins gangi miklu betur en undirbúningur að myndinni hafi gengið. Hann segist vera byrjaður að semja við fyrirsætur og að fyrsta blaðið gæti komið út í apríl eða maí. Sigurður býst við því að blaðið komi út einu sinni í mánuði.
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira