Folöldin hafa unnið hjörtu heimamanna 24. desember 2009 09:00 Folöldin hafa þegar vakið mikla athygli eftir að þau komu út til Mexíkó, enda litskrúðug og falleg. Þeim var vel fagnað við komuna eins og má sjá. „
Folöldin eru komin og unnu hjörtu Mexíkóanna um leið og þau birtust." Þetta stendur í tölvupósti sem hin þýska hestakona, Regína Hof, skrifaði Huldu Gústafsdóttur á Árbakka í Rangárvallasýslu, útflytjanda sjö folalda, sem flutt voru frá Íslandi til Mexíkó. Eins og Fréttablaðið greindi frá leitaði Regína til Huldu eftir aðstoð við að finna út úr því hvernig hægt væri að flytja hross frá Íslandi til Mexíkó. Þegar komin var áætlun um flutninginn keypti Regína folöldin sjö. Þau munu vera fyrstu íslensku hestarnir sem fluttir eru milli þessara landa eftir því sem best er vitað. Hulda segir að afskaplega vel hafi farið um folöldin á þeirri löngu leið sem þau lögðu að baki, fyrst með flugi til New York og síðan með bíl gegnum Bandaríkin. „Hingað komu þau, svolítið skítug en afskaplega ánægð," skrifar Regína enn fremur til Huldu. „Svo var eins og máttarvöldin hefðu ákveðið að hafa hönd í bagga með að taka á móti þeim, því daginn sem þau komu var fremur kalt í veðri miðað við það sem gerist hér, ekki nema sextán gráður yfir hádaginn og rigning, sem er ekki venjulegt hér á þessum árstíma. Þeim leið því mjög vel við komuna." Folöldin lögðu af stað í ferðina miklu 25. nóvember. Þau komu á leiðarenda 17. desember. Hulda segir að þess hafi verið vel gætt að þeim liði vel á ferðalaginu; gott fóður, vatn og mikill og góður undirburður í bílnum. „Þau voru þrjár vikur á leiðinni, þar af sextán daga í hvíld. Þá var stoppað á búgörðum, þar sem þau fengu að teygja úr sér og leika sér í gerðum eða á túnum. Það var allt gert til þess að þau hefðu það sem best. Ég er rosa ánægð með hvað þetta gekk vel og spennt að sjá hvort eitthvert framhald verður á þessu," bætir Hulda við. „Í fyrstu hugsaði Regína sér þessi folaldakaup einungis fyrir sig, en nú stefnir í að þetta gæti undið upp á sig vegna áhuga Mexíkóanna, sem vilji nú ólmir kynnast íslenska hestinum, prófa hann og kaupa." jss@frettabladid.isTugga og vatnssopi Ekki var verra að fá heytuggu og vatnssopa við komuna.farartækið Það var rúmt á farþegunum sjö í gegnum Bandaríkin á þessum bíl.Fréttablaðið/Regína HofÁ spretti Tekið til fótanna í nýjum heimkynnum.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira