Innlent

Alvarlegt vinnuslys í Garðinum: Ekki í lífshættu

18 ára starfsmaður verktaka við Grunnskólann í Garði á Reykjanesi höfuðkúpubrotnaði, hlaut áverka í andliti og fótbrotnaði, þegar hann varð undir fleka úr steypumóti um klukkan átta í morgun.

Samstarfsmenn hans náðu farginu ofan af honum og var hann fluttur með hraði á slysadeild Landsspítalans í Reykjavík þar sem verið er að gera að meiðslum hans.

Að sögn læknis þar er hann ekki í lífshættu þrátt fyrir alvarlega áverka.

Vinnueftirlitið og lögregla rannsaka nú vettvang slyssins














Fleiri fréttir

Sjá meira


×