Nokkur hundruð á Hróarskeldu 22. júní 2009 06:00 Íslendingum sem fara á Hróarskelduhátíðina hefur snarfækkað í ár vegna kreppunnar. mynd/kristján
Hróaskelduhátíðin hefur verið vinsæl meðal rokkþyrstra Íslendinga sem hafa flykkst til Danaveldis í hundraða tali í byrjun júlí. Kreppan setur hins vegar strik í reikninginn í ár. Aðeins hafa nokkur hundruð miðar selst hérlendis á hátíðina í ár. Þetta er mikil breyting frá því í fyrra þegar 860 miðar seldust. „Þetta er mjög lítið miðað við síðustu ár en ég hef trú á að fólk ákveði þetta á síðustu stundu þegar aðstæður eru svona,“ segir Tómas Young, talsmaður hátíðarinnar, sem vildi þó ekki gefa upp nákvæma tölu. „Maður bjóst alveg við þessu fyrst miðinn er á þessu verði. Ef miðinn kostar 47.900 eins og í dag er eðlilegt að fólk sjá það eins og Everest, þótt þetta sé örugglega ódýrasta ferðin sem fólk getur farið í til útlanda því það þarf ekki að borga gistingu.“ Miðinn í fyrra var á bilinu 24 og 30 þúsund krónur og því hefur verðið næstum tvöfaldast vegna lágs gengis íslensku krónunnar. Forsvarsmenn Hróarskelduhátíðarinnar íhuguðu að bjóða Íslendingum ókeypis ferðir á hátíðina en hættu við vegna mikils kostnaðar. „Hátíðin sá ekki hag sinn í því að kaupa 50 þúsund króna flugmiða til að selja 47 þúsund króna miða. Það er augljóst tap af því,“ segir Tómas. Um 40 þúsund manns hafa keypt miða á hátíðina ár, sem er töluvert minna en í fyrra þegar um 75 þúsund manns sóttu hana heim. Hefur efnahagskreppunni verið kennt um þennan dvínandi áhuga. Dagskrá hátíðarinnar lítur engu að síður glæsilega út því á meðal flytjenda eru Oasis, Coldplay, Kanye West, Fleet Foxes, Pete Doherty og Hjaltalín. - fb
Mest lesið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Rassaumhirða karla í sókn Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira