Innlent

Svínaflensan rædd á fundum um allt land

Haraldur Briem sóttvarnarlæknir.
Haraldur Briem sóttvarnarlæknir.
Fulltrúar sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hitta sóttvarnalækna, lögreglustjóra, forystumenn sveitarfélaga og heilbrigðisstarfsmenn á alls fimmtán fundum víðs vegar um landið núna í júní til að ræða svæðisáætlanir um viðbrögð vegna inflúensufaraldurs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og Almannavarnardeildar RLS. Þá segir að með þessu eigi að samræma aðgerðir í héraði og á landsvísu ef inflúensa A (H1N1) breiðist út hérlendis. Fyrsti fundurinn af þessu tagi var á Akranesi í gær og tókst vel að því er segir í tilkynningunni.

Á morgun er hliðstæður fundur á Selfossi og á föstudag í Stykkishólmi og á Suðurnesjum. Áætlað er að vinnu við svæðisáætlanir ljúki fyrir 1. september 2009.



Inflúensa A (H1N1) breiðist áfram út í heiminum. Alls hafa nú verið greind 19.159 tilfelli, þar af 605 í ríkjum ESB og EFTA.

Skráð dauðsföll af völdum veikinnar eru 117 talsins, þar af 97 í Mexíkó, 17 í Bandaríkjunum, 2 í Kanada og 1 í Kosta Ríka.

- Á Íslandi hefur einungis eitt tilfelli sýkingar af völdum hinnar nýju inflúensu A (H1N1) verið staðfest.

- Læknar eru áfram hvattir til að senda sýni til veirugreiningar samkvæmt leiðbeiningum sóttvarnalæknis.

- Viðbúnaðarstig hér á landi er óbreytt, þ.e. unnið er samkvæmt hættustigi.

- Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur enn ekki aukið viðbúnað sinn og farið upp á sjötta og efsta stigið. Stofnunin hefur því ekki lýst yfir heimsfaraldri og jafnvel þótt hún geri það verður óbreyttur viðbúnaður hérlendis, enda inflúensufaraldurinn vægur.



Nánari upplýsingar

Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensu A (H1N1) eru birtar á influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi, einnig á landlaeknir.is og á heimasíðum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×