Innlent

Lögreglan fann 125 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kannabisplöntur sem lögregla hefur lagt hald á. Mynd/ Stefán.
Kannabisplöntur sem lögregla hefur lagt hald á. Mynd/ Stefán.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni fyrir hádegi í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 125 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar og um 400 grömm af marijúana. Á sama stað fannst einnig mjög mikið af kannabisfræjum. Karl á fertugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins og játaði hann aðild sína en fíkniefnin voru ætluð til sölu.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×