Innlent

Lögreglan lýsir eftir pilti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir sextán ára pilti. Hann fór frá heimili sínu síðastliðinn fimmtudag og hefur ekki sést síðan.

Pilturinn er 16 ára gamall, um 194 cm á hæð, grannvaxinn og dökkhærður. Ekki er vitað um klæðaburð hans.

Þeir sem hafa orðið hans varir eða vita um ferðir hans, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1130.

Fréttin hefur verið uppfærð þar sem sá sem lýst var eftir var undir lögaldri. Nafn og mynd af piltinum hafa verið fjarlægð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×