Innlent

Sigmundur í svart-hvítu héðan í frá

Svart-hvítur Sigmundur Ernir en hann má ekki prenta sig sjálfan í lit hjá prentsmiðju.
Svart-hvítur Sigmundur Ernir en hann má ekki prenta sig sjálfan í lit hjá prentsmiðju.

„Í mjög einföldu máli þá gerði ég þennan einblöðung en það var ódýrara prenta þetta svona í stað þess að notast við litaprentara," segir frambjóðandinn og fyrrum fréttamaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson, en DV sagði frá því í dag að hann hefði verið áminntur fyrir að brjóta reglur Samfylkingarinnar um prófkjör.

Hann segist ekki hafa vitað betur en samkvæmt reglunum mátti ekki láta borga prentun fyrir sig, frambjóðendur þurfa að framkvæma slíkt sjálfir. Tveir mótframbjóðendur gerðu athugasemdir við aðferð Sigmundar og var hann áminntur í kjölfarið.

Spurður hvort hann verði svart-hvítur héðan í frá hlær Sigmundur og svarar: „Já ætli það ekki."

Sigmundur hefur ferðast vítt um NA-kjördæmi undanfarið og segist hafa lagt 3000 kílómetra að baki. Prófkjör Samfylkingarinnar verður næstu helgi. Sigmundur segir baráttuna leggjast vel í sig.

„Það er mikill hugur í mínu fólki," segir hann að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×