Svefnleysisbætur bankamanna 29. október 2009 18:30
Fyrrverandi starfsmenn og stjórnendur gömlu bankanna gera milljarða króna launakröfur í þrotabú þeirra. Dæmi eru um að menn reyni allt til að hækka kröfur sínar, meðal annars að krefjast bóta vegna svefnleysis og bónusa fyrir vel unnin störf. Launakröfur eru samkvæmt lögum forgangskröfur í þrotabú. Þær eru aðallega tvenns konar. Annars vegar geta þeir sem fengu vinnu í nýja bankanum farið fram á að fá muninn á launum gamla og nýja bankans greiddan út uppsagnarfrestinn en algengt er að laun fólks hafi lækkað um allt að 40%. Hins vegar geta þeir sem misstu vinnuna krafist launa út uppsagnarfrestinn. Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja hafa aðstoðað nokkur hundruð fyrrverandi og núverandi bankastarfsmenn við að útbúa launakröfur. Þeir aðstoða þó ekki stjórnendur og annast bara kröfur sem rúmast innan kjarasamninga. Umræða um ofurlaun stjórnenda bankanna hefur verið áberandi og ljóst að þeir gætu gert háar kröfur í þrotabú bankanna. T.a.m. voru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, með 4 ára uppsagnarfrest. Þeir voru báðir með 70,5 milljónir króna í árslaun og gætu því samanlagt gert kröfu upp á rúman hálfan milljarð í þrotabúið. Kröfur æðstu stjórnenda bankanna falla þó ekki undir forgangskröfur. Þá er einnig álitamál hvort að kröfur þeirra sem voru titlaðir framkvæmdastjórar verði flokkaðar sem forgangskröfur. Nú þegar hafa slitastjórnir þrotabúanna fengið all nokkrar slíkar kröfur og er talið líklegt að þær hafni flestar fyrir dómstólum, líkt og 600 milljóna króna krafa William Fall, fyrrverandi forstjóra Straums. Ómögulegt er að gera sér grein fyrir hver endanleg upphæð krafnanna verður fyrr en kröfulýsingarfrestur gömlu bankanna rennur út. Kröfurnar hlaupa þó á milljörðum en launakröfur í Straum einan námu um tveimur og hálfum milljarði króna. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa nokkrir starfsmenn sótt það fast að fá greidda bónusa og teygt sig stundum ansi langt til að hækka kröfurnar, m.a. með því að krefjast bóta vegna svefnleysis út af áhyggjum.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira