Skjólstæðingur Bubba leikur vöðvatröll á Akureyri 1. júlí 2009 06:00 Eyþór Ingi úr bandinu hans Bubba leikur Rocky í söngleiknum Rocky Horror Picture Show á Akureyri næsta vetur. Magnús Jónsson fer með aðalhlutverkið og nýtur dyggrar aðstoðar þeirra Jönu Maríu Guðmundsdóttur og Bryndísar Ásmundsdóttur. „
Ég hélt eiginlega að það væri verið að grínast í mér þegar þau hringdu. Ég hló bara,“ segir Eyþór Ingi Gunnlaugsson söngvari. Eyþór hefur verið ráðinn í hlutverk Rockys í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á Rocky Horror Picture Show næsta vetur. Rocky er hinn fullkomni karlmaður sem Frank N Furter skapar og sprangar hálfber um sviðið í sýningunni. Eyþór skilur ekki alveg hvernig leikhúsfólk á Akureyri sá hann fyrir sér í hlutverkinu. „Ég hlýt að sjá mig eitthvað í röngu ljósi. Ætli ég verði ekki að fara að pumpa,“ segir hann hress í bragði. Eins og Fréttablaðið hefur þegar greint frá fer Magnús Jónsson með aðalhlutverkið í sýningunni, leikur sjálfan Frank N Furter, og Andrea Gylfadóttir er tónlistarstjóri sýningarinnar. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson. Hið siðprúða par Brad og Janet verður leikið af Atla Þór Albertssyni og Jönu Maríu Guðmundsdóttur og Bryndís Ásmundsdóttir mun leika þjónustustúlku Frank N Furter. Þá leikur Jóhann G. Jóhannsson Riff Raff og Guðmundur Ólafson leikur Dr. Scott. Stefnt er því að frumsýna söngleikinn í mars á næsta ári. Eyþór Ingi er frá Dalvík og segist alltaf hafa haft áhuga á leiklist. Hann hafi komið fram í sýningum í heimabænum og eitthvað stigið á svið hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann kveðst því spenntur fyrir því að leika í Rocky Horror. „Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og þetta hlutverk er mjög spes... þetta verður áhugavert,“ segir hann. Rúmt ár er nú liðið síðan Eyþór Ingi sigraði í Bandinu hans Bubba, raunveruleikaþætti Bubba Morthens sem sýndur var á Stöð 2. Fyrir utan það að syngja á nokkrum böllum með Stuðmönnum hefur hann alls ekki haft sig mikið í frammi á tónlistarsviðinu. Eyþór segir að hann hyggist bæta úr því á næstunni. „Það er eitthvað á leiðinni frá mér. Svo verður að koma í ljós hvort þjóðin vill heyra tónlistina mína.“ Magnús Jónsson leikari Magnús Jónsson leikari Maggi Jóns, Blake Jana María Guðmundsdóttir söngkona g
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira