Innlent

Sala áfengis eykst á milli ára

Sala áfengis í janúar jókst um 12% í lítrum miðað við sama tímabil í fyrra. Sala bjórs jókst um 15% á tímabilinu og sala hvítvíns um 12%. Sala rauðvíns og ókryddaðs brennivíns jókst um 4% og 8% á tímabilinu. Á vef Vínbúðanna kemur fram að þessi aukning skýrist af því að í janúar í ár hafi verið fimm laugardagar en fjórir í fyrra. Sala fimmta föstu- og laugardagsins (30.-31.janúar) hafi verið um 17% af heildarsölu mánaðarins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×