Lífið

Selið á Stokkalæknum opnað

Víkingur Heiðar Ólafsson
Vígir Selið á Stokkalæk á laugardag.
Víkingur Heiðar Ólafsson Vígir Selið á Stokkalæk á laugardag.

Á laugardag verða haldnir tónleikar í fyrsta sinn í Selinu á Stokkalæk á Rangárvöllum. Þar mun Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari koma fram á tvennum tónleikum ásamt þeim Höllu Oddnýju Magnúsdóttur píanóleikara og Huldu Jónsdóttur fiðluleikara.

Selið, nýja tónlistarsetrið á Stokkalæk, í nær 100 km fjarlægð frá Reykjavík, er nýlega sett á stofn, fyrst og fremst að styrkja unga tónlistarnema í klassískri tónlist til að efla færni sína og menntun og veita þeim og öðru tónlistarfólki tækifæri á að iðka tónlist sína, koma saman og æfa og halda tónleika.

Tónlistarsetrið til húsa í fyrrum fjósi við gamla bæinn í landi Stokkalækjar á Rangárvöllum. Þar var áður hótelrekstur og ferðaþjónusta. Í húsinu eru átta tveggja manna herbergi með baði og er Kawai-píanó í hverju herbergi. Í salnum, sem jafnframt er setustofa og tekur um það bil 50 manns í sæti, er nýr Steinway-flygill, valinn af Víkingi Heiðari Ólafssyni. Hann mun svo standa fyrir tónlistarhátíðum og meistara­námskeiðum í Selinu á Stokkalæk á komandi árum.

Í ráði er að úthluta á hverju ári nokkrum heimildum til endurgjaldslausrar dvalar í Selinu sem styrkjum til þeirra tónlistarnema eða tónlistarkennara, sem áhuga hafa á að skipuleggja og standa fyrir meistaranámskeiðum og til tónlistarnema og tónlistarmanna, sem eru að hefja feril sinn sem atvinnumenn í klassískri tónlist, til æfinga og tónleikahalds.

Á tónleikunum 4. júlí, sem hefjast kl. 14 og kl. 17, mun Víkingur Heiðar flytja eigin útsetningar á íslenskum sönglögum auk verka eftir Chopin og Debussy. Hann flutti íslensku sönglögin í sínum útsetningum á Listahátið við frábærar undirtektir. Víkingur hefur haft nóg að gera upp á síðkastið. Hann gaf nýlega út disk á eigin vegum sem fæst í betri hljómplötudeildum.

Þá munu hann og Halla Oddný spila fjórhenta útsetningu Sveinbjörns Sveinbjörnssonar á íslenska þjóðsöngnum, Ó, Guð vors lands. Ekki er vitað til að þessi útsetning hafi áður verið flutt opinberlega hér á landi. Loks munu Víkingur og Hulda Jónsdóttir flytja verk eftir Manuel de Falla og Mozart.

Ókeypis er á tónleikana en vegna takmarkaðs sætafjölda í Selinu á Stokkalæk þarf að panta miða í síma 4875512 á morgun, miðvikudagi 1. júlí nk. milli kl. 13 og 18.

Heimasíða Selsins á Stokkalæk, stokkalækur.is, verður opnuð um mánaðamótin.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.