Synirnir ætla sér stóra hluti 24. júní 2009 03:00 synir syndanna Skagahljómsveitin Synir syndanna hefur gefið út sína fyrstu plötu.
Skagahljómsveitin Synir syndanna hefur gefið út sína fyrstu plötu, Hvernig eru himnar? Þessi hressa poppsveit var stofnuð í fyrra af gítarleikaranum Birni Árnasyni og söngvaranum Kristófer Jónssyni, sem semja öll lög og texta á plötunni. Síðan þá hafa þeir Bjarki Þór Aðalsteinsson og Karl Jóhannsson bæst í hópinn. Þrátt fyrir að ætla sér stóra hluti í tónlistinni hafa þeir félagar í nógu öðru að snúast. „Við erum tveir að vinna í álveri, einn er sjómaður og einn er að vinna í Slippnum. Við náum samt alltaf að finna tíma til að hittast þótt ótrúlegt sé,“ segja þeir félagar. „Þessi plata er bara byrjunin. Við erum búnir að semja lög á eina og hálfa plötu í viðbót og ætlum að hefja upptökur á næstu plötu í haust.“ Við upptökur á Hvernig eru himnar? fengu þeir góða aðstoð frá Pálma Sigurhjartarsyni úr Sniglabandinu, trommaranum Jóhanni Hjörleifssyni og fleiri fagmönnum úr tónlistarbransanum og kunna þeir þeim bestu þakkir fyrir. Synir syndanna spiluðu síðast á Akranesi á laugardagskvöld til minningar um Sigmund Erling Ingimarsson, sem lést á dögunum á 27. aldursári. Stutt er síðan hann vann sér það til frægðar að hafa trommað með Mugison á tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi. - fb
Mest lesið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Lífið Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Lífið Eliza Reid efst á bóksölulistanum Menning Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Fleiri fréttir Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Typpi í einu gati, tæki í öðru Ný stikla úr GTA VI Allt til alls til að kenna björgun mannslífa Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Sígild sumarterta að hætti Dana Verzló vann MORFÍs Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Plönuðu skemmtileg stefnumót fyrir fjögur þúsund krónur Fyrsti opinberi kossinn í þrítugsafmælinu Réttarhöld yfir Diddy hafin: Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér Lára og lyfjaprinsinn eignuðust stúlku Sjá meira