Grínkóngar sameinaðir á hvíta tjaldinu 6. júní 2009 04:45 Hvergi banginn Þorsteinn Gunnar Bjarnason er að fara að leikstýra sinni fyrstu mynd í fullri lengd. Og hún skartar grínkóngunum Ladda og Stefáni Karli í aðalhlutverkum. Leikstjórinn segist vera með smá í maganum yfir þessu öllu en kveðst þó vera hvergi banginn. „
Það er ekkert eiginlegt nafn komið á myndina, köllum hana bara Laddi - The Movie þótt hún sé ekkert um Ladda og líf hans," segir Þorsteinn Gunnar Bjarnason kvikmyndaleikstjóri. Þorsteinn er að fara að leikstýra sinni fyrstu mynd í fullri lengd og ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Hefur fengið sjálfan Ladda í aðalhlutverkið en ár og dagar eru liðnir síðan þessi ástsælasti grínleikari birtist síðast á hvíta tjaldinu; samkvæmt Imdb.com var það í kvikmyndinni Stella í framboði frá árinu 2002 þar sem hann endurtók hlutverk hins víðfræga Salomons en það er önnur saga. Meðal mótleikara Ladda í myndinni er síðan hin alþjóðlega Latabæjar-stjarna Stefán Karl Stefánsson þannig að ekki verður annað sagt en að ferill Þorsteins fái fljúgandi start. Hann hefur sjálfur enga skýringu á því af hverju honum tókst að fá þessa tvo grínkónga til liðs við sig. „Þegar stórt er spurt. Ég trúi því bara að þeir hafi séð að þetta gæti orðið skemmtileg mynd." Um er að ræða gamanmynd um örlagaríkan dag í lífi manns þar sem allt fer á annan veg en upphaflega var gert ráð fyrir. Stefán Karl Stefánsson/Leikari/Söngvari/Los Angeles „Þetta er svona „road-movie, vegamynd eins og það heitir víst á íslensku, og gerist bæði í höfuðborginni og sveitum landsins," segir Þorsteinn en tökur á myndinni ættu að hefjast á þessu ári. Þorsteinn viðurkennir að það sé óneitanlega svolítið stressandi að vera að fara að leikstýra kvikmynd með bæði Ladda og Stefáni Karli. „Já, ég væri að ljúga því ef ég væri ekki með í maganum yfir þessu, en ég er með gott fólk með mér," segir Þorsteinn. Laddi Þórhallur Sigurðsson „Til að mynda er Gunnar Björn Guðmundsson aðstoðarleikstjóri og hann verður mín hægri hönd enda kominn með dágóða reynslu," en Gunnar Björn leikstýrði til að mynda Astrópíu sem sló rækilega í gegn í íslenskum kvikmyndahúsum. Þorsteinn lærði sín fræði í Kvikmyndaskóla Íslands, nam þar bæði handritsskrif og leikstjórn. „Svo fór ég til London í mastersnám í leiklist og kom bara aftur heim síðasta sumar," útskýrir Þorsteinn sem er hvergi banginn þótt efnahagsástandið á Íslandi sé ekki upp á marga fiska. „Það þarf ekki alltaf að vera dýrt að gera bíómynd." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira