Hart barist gegn sorpinu 6. júní 2009 05:00 MENGUN OG SÝKINGARHÆTTA Íbúar í nágrenni Kirkjuferjuhjáleigu kvarta undan mengun, fnyk og umferðarþunga af völdum sorpurðunarinnar. Þeir óttast að fuglager sem vomir yfir haugunum beri sýkingar, svo sem salmonellu, í búfénað þeirra.
Tillaga Umhverfisstofnunar um framlengt starfsleyfi Sorpstöðvar Suðurlands, sem kveður á um að sorp verði urðað í landi Kirkjuferjuhjáleigu næstu sextán árin, hefur vakið harða andstöðu íbúa í nágrenni stöðvarinnar. Umrædd tillaga var kynnt á borgarafundi fyrr í vikunni. Íbúar segja gildandi deiliskipulag hafa verið þverbrotið á þeim tíma sem sorpstöðin hefur verið starfrækt á staðnum. „Þeir voru búnir að teikna nýtt skipulag þar sem gert var ráð fyrir að urðunarhaugarnir yrðu umtalsvert hærri en gildandi deiliskipulag kvað á um. Samþykkt hæð í skipulaginu var fjórir metrar yfir landhæð og metri í þekjulag þar sem hæst væri. Nú eru haugarnir komnir í að minnsta kosti tíu metra hæð yfir landhæð. Þetta nýja skipulag var því eins og að fá leyfi fyrir að byggja einbýlishús, byggja svo blokk, teikna hana að byggingu lokinni og fá svo teikningarnar samþykktar,“ segir Kristbjörg Eyvindsdóttir í Auðsholtshjáleigu sem er í nágrenni urðunarstaðarins. Kristbjörg kærði til úrskurðarnefndar skipulagsmála, sem felldi úr gildi hið nýja deiliskipulag bæjarstjórnarinnar þar sem ekki mætti byggja það á deiliskipulagi sem þegar hefði verið brotið nema að uppfylltum vissum skilyrðum. Sveitarfélagið hafði samþykkt að urðun á staðnum yrði hætt 1. desember 2008. Síðan var veitt eins árs undanþága. Tillagan um framlengt starfsleyfi sem kynnt var á borgarafundinum nú í vikunni kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti. Samkvæmt því má urða þrjátíu þúsund tonn af sorpi á ári, samtals 480 þúsund tonn á sextán árum. „Deiliskipulagið frá 1993, sem sorpstöðin á að starfa eftir, en reyndar er búið að þverbrjóta, rúmar ekki einu sinni það magn sem þegar er búið að setja á svæðið, hvað þá 480 þúsund tonn til viðbótar,“ segir Kristbjörg. „Það er með ólíkindum að Umhverfisstofnun ætli sér að setja starfsleyfi á starfsemi sem hefur enga möguleika á að taka við þessu magni.“ Kristbjörg segir mikla sjón- og lyktarmengun, auk foks frá urðunarstaðnum, sem er á bökkum Ölfusár, auk þess sem vatnasvæði sé upp í Sogið og Hvítá. Rannsóknir á áhrifum mengunar séu engar. Ekki hafi farið fram tilskilið umhverfismat áður en starfsemin hófst. jss@frettabladid.is
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Sjá meira